Guðdómlegir kanilsnúðar. Upphaflega gerðir með súrdeigi en líka hægt að gera með geri.
Course: Snack
Author: aron
Ingredients
Deig
700grhveiti
100grhrásykur ( eða bara sykur )
10gr sjávarsalt ( eða bara borðsalt)
350mlnýmjólk
1stkegg
100grsmjörkallt
Hefunarefni: súrdeig eða ferskt ger eða ger
40-80grsúrdeig
30grferskt ger
3tskþurrt ger
Fylling
250grsmjörstofuheitt
100grhrásykur (eða bara sykur)
20grkanill
Sykurhúð
100mlvatn
110grhrásykur ( eða bara sykur)
Instructions
Deig
Blanda þurrefnum í hrærivélaskál.
Velgja mjólk í ca 38°C og setja egg og súrdeig/ger út og blanda vel
Hella vökvanum saman við þurrefni og blanda með deigkrók í nokkrar mínútur
Láta hvíla í 30 mínútur
Banka smjör niður með kökukefli þar til örþunnt og leggja svo ofan á deig og hræra saman við, gott að hafa smjörið á milli bökunarpappírsarka í þessari aðgerð.
Láta hefast þar til tvöfaldast, ca 1 klst með geri, ca 8-10 tímar með súrdeigi.
Fylling
Hræra saman smjöri sykri og kanil í skál þannig að hægt sé að smyrja því létt á deigið. Nota gaffal, eða skeið eða hrærivél.
Sykurhúð
Sjóða upp vatn og sykur
Snúðagerð
Fletja deigið út ca 1 cm þykkt, kannski að stærð eins og ein stór bökunarplata.
Smyrja fyllingunni á 2/3 hluta deigsins
Brjóta hlutann sem ekki fékk neina fyllingu yfir miðju hlutann og svo síðasta þriðjunginn yfir miðjuna.
Fletja renningin aðeins út með kefli og skipta svo niður í mjóa renninga í ca 2-4 cm á breidd ( ca 18 stk ). Gott að skera með hníf á skurðarbretti eða með pizzahjóli. Mjórri renningar gefa minni snúða. Ef hafðir mjórri er gott að fletja meira út áður en skorið.
Teygja hvern renning og snúa upp á meðan vafinn utan um tvo fingur þar til endinn sem eftir er getur teygst yfir snúðinn og endað undir honum. ( sjá video að neðan )
Leggja á bökunarplötu og spreyja létt með vatni.
Láta hefast undir rökum klút eða í lokuðum ofni þar til snúðarnir hafa tvöfaldast ( ca 40 - 60 mín ).
Baka við 200°C í ca 12 mínútur eða þar til ljósbrúnir ( misjafnt eftir ofnum )