Hráefni:
- 7 1/2 dl hveiti
- 1/2 tsk salt
- 1 1/2 tsk lyftiduft
- 1/2 dl hrásykur
- 125 gr kallt smjör
- 1 egg
- 2 dl mjólk
- 100 gr dökkt súkkulaði ( 70% )
- Egg og hrásykur til pensla og strá yfir
Vinnsla:
- Setja ofninn á 250°C
- Hræra saman þurrefnum í skál
- Skera smjör í teninga og mylja vel saman við þurrefnin
- Saxa súkkulaði gróft og blanda við þurrefnin.
- Hræra saman egg og mjólk
- Blanda saman þurrefnum og vökva og hræra í deig
- Fletja út í ca 3 cm þykka köku, skera svo í geira. T.d 12 stykki.
- 7. Setja á bökunarpappír og pennsla með eggi og strá yfir með hrásykri
- Baka þar til gullinbrúnir ca 10 mínútur.